Stjörnubílar taka fullkomna rútu í notkun
Ný rúta hefur bæst í bílaflota Stjörnubíla á Ísafirði en um er að ræða bíl af Benz gerð sem keyptur er notaður af fyrirtæki í Reykjavík. Rögnvaldur Ólafsson, hjá Stjörnubílum, segir rútukaupin lið í endurnýjun bílaflota fyrirtækisins. Fullkominn útbúnaður er í bílnum, m.a. salerni, sjónvarp, hallanleg sæti og fleira. „Þetta er einn með öllu. Það má segja að hann innihaldi alllann þann búnað sem gerð er krafa um í dag og rétt rúmlega það“, segir Rögnvaldur.
Aðspurður um verkefnastöðuna segir Rögnvaldur að ágætlega hafi gengið að bóka verkefni fyrir nýju rútuna. „Það á eftir að koma í ljós hvað verður gert næsta sumar. Ef bjóðast álitleg verkefni hérna á svæðinu þá stökkvum við á þau en annars erum við klárir í að starfa á öllum vígsstöðvum og reynum að vera opnir fyrir möguleikum“, sagði Rögnvaldur.
