Stjörnubílar og Vesturferðir semja
Rútufyrirtækið Stjörnubílar og ferðaskrifstofan Vesturferðir náðu í gær samningum um akstur skemmtiskipafarþega í sumar. Samningurinn felur í sér að Stjörnubílar sjá um allan akstur sem tengist skemmtiskipum á vegum Vesturferða, bæði með eigin rútum og rútum samstarfsaðila. Í frétt á heimasíðu Vesturferða segir að það sé von beggja aðila að samningurinn veiti báðum aðilum öryggi og festu í því mikla starfi sem framundan er við þjónustu við skemmtiskipafarþega. Í sumar er áætlað að 28 skemmtiferðaskip komi til Ísafjarðar, það fyrsta kemur 25. maí og það síðasta kemur 2. september. Farþegafjöldinn á skipunum er samtals tæp 19.000 manns.
