fimmtudagurinn 18. september 2008

Nemendur MÍ eru til fyrirmyndar!

Starfsmenn Stjörnubíla á Ísafirði vilja koma því á framfæri, vegna umræðu síðustu daga um meinta slæma hegðun nemenda Menntaskólans á Ísafirði á viðburðum tengdum skólanum, að þeim finnist einungis einblínt á slæma hegðun einstakra nemenda skólans. Stjörnubílar tóku að sér að aka nemendum á dansleik á vegum Menntaskólans á Ísafirði í félagsheimili Flateyrar í upphafi þessa skólaárs og var hegðan þeirra til fyrirmyndar að mati starfsmanna Stjörnubíla. Hafi nemendur hegðað sér einstaklega prúðmannlega á dansleiknum og þegar fara átti heim var ekki þörf á að reka unglingana í rútur líkt og vill gerast með lífsreyndari íbúa Vestfjarða. Umgengi og hegðun á svæði dansleiksins hafi verið til fyrirmyndar og eins í rútunum. Þykir þeim því leitt að sjá hvert stefnir fyrir þeim nemendum skólans sem vilja fá að stunda félagslíf líkt og aðrir íbúar á Vestfjörðum ef banna á alla viðburði sem þau gætu hugsanlega sótt. 

Fréttir

Vefumsjón