þriðjudagurinn 16. apríl 2002

„Hæstiréttur“ til Ísafjarðar

Fyrirtækið Stjörnubílar ehf. á Ísafirði festu nýlega kaup á notaðri, 44 sæta rútu af Mercedes Benz gerð. Rútan er sérstaklega glæsileg og vel útbúin að sögn eigendanna. Mjög gott sætapláss er í rútunni, fótskemlar við hvert sæti, sjónvarpstæki, kaffi- og snyrtiaðstaða. Um þessar mundir er verið að ljúka við merkingar á rútunni sem gefið hefur verið nafnið „Hæstiréttur“, (vegna hæðar hennar) og ætla forsvarsmenn Stjörnubíla að hefja útleigu á henni innan skamms.
Rögnvaldur Ólafsson, einn eigenda Stjörnubíla ehf. sagði í samtali við blaðið, að ekki stæði til að ryðjast inn á markað þar sem aðrir væru fyrir, heldur væri ætlunin að skapa ný atvinnutækifæri. Það kæmi þó ekki í veg fyrir að fyrirtækið tæki að sér öll þau verkefni sem kynnu að bjóðast, aðalatriðið væri að bjóða upp á akstur á Vestfjörðum og víðar á góðu verði. Rögnvaldur segir að rekstur Stjörnubíla ehf. hafi gengið vel, nóg hafi verið að gera og bendir í því sambandi á að fyrirtækið hafi séð um alla flutninga fyrir KFÍ í vetur. „Það þýðir ekkert að gefast upp. Við fengum ekki strætisvagnaksturinn á síðasta ári og þá verðum við bara að finna eitthvað annað að gera,“ sagði Rögnvaldur.
Frétt: BB.is

Fréttir

Vefumsjón